Stjórnun og skipulag

NÁMSMARKMIÐ

Að gera stjórnendur meðvitaðri um eigin tímastjórnun og vinnuskipulag ásamt því að vekja þá til umhugsunar um hvernig þeir stýra sínu starfsfólki, með það að markmiði að gera þá að öflugri stjórnendum.

KENNSLUFORM

Fyrirlestur, umræður, verkefni, dæmisögur og myndskeið. Á þessu námskeiði er gert ráð fyrir að þátttakendur vinni verkefni milli námskeiðsdaga

LENGD NÁMSKEIÐS

Námskeiðið er 6 klst. (2×3 klst.).

NÁMSKEIÐSLÝSING

Námskeið er tvískipt:

Fyrri parturinn snýr að eigin stjórnun. Hvernig við stýrum vinnu okkar, verkefnum og tíma, og hvernig við komumst yfir öll þau verkefni sem liggja fyrir? Unnið er m.a. með markmiðasetningu og yfirfærslu hennar á dagleg störf þátttakenda. Til að greina mikilvægi verkefna og skipulag á þeim er m. a farið í Paretolögmálið og verkefnalista.

Í seinni hluta námskeiðsins er stjórnun starfsfólks tekin fyrir.  Listin að stjórna sér og öðrum, hvernig við sem stjórnendur getum haft áhrif á starfsfólk, líðan þeirra og afköst. Farið í grunnatriði stjórnunar, aðferðir, völd, ábyrgð og leiðir til að koma hlutum í verk og láta gott af sér leiða. 

LEIÐBEINANDI

Ragnar Matthíasson mannauðsráðgjafi – MBA og MSc. í mannauðsstjórnun. Ragnar hefur víðtæka reynslu af námskeiðahaldi og ráðgjöf. Hann hefur unnið fyrir fjölda fyrirtækja af ýmsum stærðum og gerðum

Hafðu samband og fáðu nánari upplýsingar um hvað hentar þínum vinnustað

Námskeið um stjórnun og skipulag