Að gera grein fyrir því hvernig hægt er að byggja upp ráðningarferli sem hefur það að markmiði að ráða hæfasta starfsmanninn og halda honum. Farið í algengustu mistökin í ráðningum og hvernig koma má í veg fyrir þau.
Ráðningarferlið útskýrt og sýnt fram á mikilvægi þess að vera með markvisst ráðningarferli og hvaða áhrif mistök í ráðningarferlinu hafa á rekstur fyrirtækja. Ráðningarferlið skilgreint og útskýrt hvernig ráðningarferlið hefur áhrif á starfsmannaveltu, einnig er kostnaður af starfsmannaveltu útskýrður og hvernig fjárfesting í réttri ráðningu skilar sér í betri rekstri.
Kennsluform: Fyrirlestur, umræður, verkefni, dæmisögur og myndskeið. Á þessu námskeiði er gert ráð fyrir að þátttakendur vinni verkefni milli skipta.
Námskeiðið er 6 klst.
Ragnar Matthíasson mannauðsráðgjafi – MBA og MSc. í mannauðsstjórnun.
Ragnar hefur víðtæka reynslu af námskeiðahaldi og ráðgjöf. Hann hefur unnið fyrir fjölda fyrirtækja af ýmsum stærðum og gerðum.